Finnlandsvinir og aðdáendur Balkantónlistar á í Reykjavík (það gríðarstóra sniðmengi) geta glaðst heiftarlega miðvikudagskvöldið 4. nóvember næstkomandi, því þá mun finnska hljómsveitin Jaakko Laitinen & Väärä Raha leika sína fyrstu tónleika á Íslandi á ný-enduropnuðu Café Rosenberg! Já, þið lásuð rétt! Rosenberg er komið aftur! Jaakko Laitinen og vinir hans hafa síðan 2009 heillað áhorfendur vítt og breitt um Evrópu og eiga mikilli velgengni að fagna í heimalandinu og eins og allir vita kemur gott eitt frá Finnlandi. Það er vinur Jaakko, Svavar Knútur, sem dregur þetta fríða föruneyti á skerið og mun hann, fyrir þrábeiðni Jaakkos, taka nokkur lög til upphitunar. Kvöldið verður þó nær algerlega í höndum hinna dásamlegu Finna sem hafa marinerað sál sína í balkneskum spíra sem eimaður var í gömlum Trabant. Aðgangseyrir inn á tónleikana er litlar 4.000 krónur og er miðasala á Stubb.is